Jana Softline - Klassískir og þægilegir Mary Jane skór sem sameina fágað útlit og einstök þægindi. Lakkaáferðin gefur skónum glæsilegan svip sem hentar vel við veislur, fermingar, brúðkaup og önnur tilefni þar sem þú vilt vera vel til höfð án þess að fórna þægindunum.
Tvær stillanlegar ólar yfir ristina tryggja góða festu og fallega aðlögun að fæti, á meðan stöðugur 40 mm kubbahæll gefur hæfilega hæð og þægilegan stuðning. Skórnir eru í H-breidd (Wide Fit) sem veitir aukið rými yfir rist og tábergi fyrir meiri þægindi allan daginn.
Framleiddir úr vegan-vænum efnum og hannaðir með áherslu á vellíðan og notagildi.
Jana er sami framleiðandi og TAMARIS, en JANA er með skóvídd H, sem er aðeins meiri breidd.
ATH Einhver munur getur verið á lit, áferð og útliti á mynd og í raun.