Hvaða Robell-buxur henta mér?
Ertu að leita að þröngum buxum, beinum skálmum eða útvíðu sniði?
ROBELL býður upp á mismunandi snið og síddir.
Hér hjálpum við þér að átta þig á muninum og finna buxur sem henta þér.
Byrjaðu á sniðinu
Hér finnur þú buxna-, stuttbuxna- og leggingssniðin í núverandi Robell-úrvali okkar. Sama nafn getur komið í mismunandi efnum, síddum og útfærslum. Skoðaðu því líka vörulýsinguna við þær buxur sem þú velur.
Klassísk og bein snið
| Snið | Hvað einkennir það? | Síddir og útgáfur |
|---|---|---|
| Marie | Frekar beinar skálmar og einfalt yfirbragð án vasa. Í hefðbundnu stretch-útgáfunum er teygja í mitti og skrautklauf að framan. | Full sídd, 09 og 07; einnig gallabuxur og Thermo. Skoða Marie → |
| Bella | Beinar skálmar, rými yfir mjaðmir og snið sem nær vel upp að aftan. Algengar útgáfur hafa rassvasa og skrautvasasauma að framan; einnig eru til útgáfur með opnum framvösum. | Full sídd, 09, 07 og 05 í úrvalinu; vasar og faldur fara eftir gerð. Skoða Bella → |
| Jacklyn | Beinar skálmar og sparilegt yfirbragð. Útgáfurnar hjá okkur hafa teygju í mitti og skrautklauf og skrautvasasauma að framan. | 78 cm síðbuxur og 07 kvartbuxur; athugaðu sentímetrasídd við vöruna. Skoða Jacklyn → |
| Mimi | Klassískar buxur með rennilásvösum að framan. Margar 75 cm útgáfur eru með teygjustreng; 80 cm spariútfærslan hefur rennilás og krækju, auk beltislykkja. | Skoðaðu lokun og skálmalengd hverrar útgáfu; nafnið eitt segir ekki alla söguna. Skoða Mimi → |
| Lisa | Beinar skálmar, teygja í mitti og opnir vasar að framan. Til dæmis má velja einlita eða mynstraða 09 útgáfu. | Lisa 09 er 68 cm í þeim gerðum sem við höfum skoðað. Skoða Lisa → |
| Elsa | Ökklabuxur með teygju í mitti, rennilásvösum og saumuðu broti niður skálmarnar að framan. Klaufin að framan er til skrauts. | Elsa 09 er með 68 cm innanfótarsídd. Skoða Elsa → |
| Sandra | Beinar, sparilegar buxur með rennilás og tölu, rennilásvösum og beltislykkjum. | 78 cm innanfótarsídd í núverandi gerð. Skoða Sandra → |
| Sissi | Frekar beint snið, beltislykkjur og tala að framan. Vasaútfærslur eru ólíkar: sumar hafa opna hliðarvasa en aðrar rennilásvasa. | 80 cm innanfótarsídd; skoðaðu lokun og vasalýsingu við vöruna. Skoða Sissi → |
| Sophia | Stretchbuxur með teygju í mitti, opnum hliðarvösum og beltislykkjum. Klaufin að framan er til skrauts. | Full sídd 78 cm og Sophia 09, 68 cm. Skoða Sophia → |
Þrengri skálmar
| Snið | Hvað einkennir það? | Síddir og útgáfur |
|---|---|---|
| Rose | Þröngt snið sem liggur nálægt fótleggjunum. Stretch-útgáfurnar eru með teygju í mitti og án vasa; skraut og frágangur við fald eru breytileg. | Full sídd, 09 og 07; einnig gallabuxna- og Thermo-útgáfur. Skoða Rose → |
| Nena | Þröngt snið með breiðum teygjustreng. Einkennandi eru rennilásar við framvasa og rassvasar, en útfærslan getur verið mismunandi eftir efni og gerð. | Full sídd og 09. Skoðaðu vasalýsingu við tiltekna vöru; ekki gera ráð fyrir að allir skrautvasar séu opnir. Skoða Nena → |
| Lena | Ökklabuxur með gatamynstri neðst á skálmunum, teygju í mitti og skrautklauf að framan. | Lena 09 í núverandi úrvali er um 65 cm að innanfótarmáli. Skoða Lena → |
| Nelly | Þrengri skálmar, teygjustrengur og rennilásvasar að framan. Í sumum útgáfum er strengurinn merktur BE UNIQUE. | 72 cm innanfótarsídd; einlitar og köflóttar gerðir. Skoða Nelly → |
| Rita | Frekar þröngar, beinar skálmar með breiðri teygju í mitti og rennilásvösum að framan. | 75 cm í núverandi úrvali; meðal annars köflótt og mynstrað. Skoða Rita → |
Gallabuxur og útvíðar skálmar
| Snið | Hvað einkennir það? | Síddir og útgáfur |
|---|---|---|
| Joella | Skálmarnar víkka út að neðan. Joella er bæði til sem buxur með teygjustreng og skrautklauf og sem sparibuxur með raunverulegri lokun að framan. | 09 og full sídd; meðal annars 65, 68, 77 og 82 cm eftir vöru. Vasar og beltislykkjur eru breytileg. Skoða Joella → |
| Marlen | Gallabuxur með lítillega útvíðum skálmum. Fimm vasa útfærsla með beltislykkjum, tölu og rennilás að framan. | 80 cm innanfótarsídd. Skoða Marlen → |
| Elena | Gallabuxnasnið með tölu, rennilás, beltislykkjum og vösum að framan og aftan. Í úrvalinu eru líka comfort- og flauelsútgáfur. | Full sídd og 09; meðal annars 68, 75 og 80 cm eftir gerð. Skoða Elena → |
| Eve | Gallabuxur sem ná vel upp, með frekar beinum, þrengri skálmum. Tala, rennilás, beltislykkjur og vasar að framan og aftan. | 78 cm innanfótarsídd. Skoða Eve → |
| Chris | Klassískt fimm vasa gallabuxnasnið með beinum skálmum, tölu, rennilás og beltislykkjum. | 80 cm síðbuxur og Chris 05 hnébuxur. Skoða Chris → |
Slakari og rúmbetri snið
| Snið | Hvað einkennir það? | Síddir og útgáfur |
|---|---|---|
| Hygge | Slakara snið með breiðum teygjustreng og bandi. Vasar eru ýmist opnir eða með rennilás eftir útgáfu. | Hygge 09 og meðal annars 75 cm gerðir. Skálmarnar geta þrengst niður. Skoða Hygge → |
| Kati | Rúmt snið með víðum skálmum, breiðum streng og bandi. Framvasar eru opnir en rassvasarnir eru til skrauts í þeim gerðum sem við höfum skoðað. | Kati 09 er 65 cm; bæði gallaútlit og aðrar gerðir. Skoða Kati → |
| Gigi | Víðar skálmar með fellingum og breiðum streng. Renniláslokun er á hliðinni. | Gigi 09 er 65 cm að innanfótarmáli. Skoða Gigi → |
| Britt | Rúmbetra snið með beinum skálmum. Núverandi úrval inniheldur bæði útgáfu með teygju og bandi og spariútfærslu með tölu, rennilás og beltislykkjum. | Báðar gerðirnar eru 80 cm; veldu eftir því hvaða mittisútfærslu þú vilt. Skoða Britt → |
Golf, sumar og stuttar síddir
| Snið | Hvað einkennir það? | Síddir og útgáfur |
|---|---|---|
| Lexi | Golflína með teygju í mitti, beltislykkjum og vösum að framan og aftan. Hentar vel að skoða ef þú vilt hreyfanleika og nothæfa vasa. | Full sídd, 07 og 05; einnig Thermo-útgáfa. Skoða Lexi → |
| Culotte | Létt, rúmt kvartbuxnasnið úr teygjanlegri bómullarblöndu, með teygju í mitti og skrautklauf að framan. | Culotte 07 er 58 cm að innanfótarmáli. Skoða Culotte → |
| Emma | Stuttbuxur úr stretch-efni með teygju í mitti, opnum vösum og skrautklauf að framan. | Emma 04 er um 24 cm að innanfótarmáli. Skoða Emma → |
| Megan | Stuttbuxur úr bómullargallaefni með tölu, rennilás, beltislykkjum og opnum framvösum. Rassvasarnir í núverandi gerð eru til skrauts. | Megan 04 er um 29 cm að innanfótarmáli. Skoða Megan → |
Leggings og treggings
| Snið | Hvað einkennir það? | Síddir og útgáfur |
|---|---|---|
| Colette | Leggings með teygju í mitti og mynstri að framan. Fyrir þig sem vilt einfalt mitti og teygjanlegt efni. | 78 cm í núverandi gerð. Skoða Colette → |
| Enie | Þröngar pleðurtreggings með teygju í mitti og án vasa. | 75 cm innanfótarsídd; bæði einlit og mynstruð útgáfa. Skoða Enie → |
Vasar, strengur og lokun: athugaðu útgáfuna
Skrautklauf og vasasaumar þýða ekki endilega að buxurnar séu renndar eða með opnum vösum. Bella fæst til dæmis bæði með skrautvasasaumum og með opnum framvösum. Joella, Mimi og Britt geta haft ólíka mittis- og lokunarútfærslu eftir vöru. Vörulýsingin við viðkomandi buxur á því alltaf að ráða.
Hvað þýða tölurnar á eftir nafninu?
Nafnið segir til um sniðið en tölurnar á eftir því gefa til kynna síddina.
| Merking | Sídd |
|---|---|
| Án númers | Full sídd |
| 09 | Ökklasídd |
| 07 | Kvartbuxur |
| 05 | Hnébuxur |
| 04 | Stuttbuxur fyrir ofan hné |
Skoðaðu líka uppgefna skálmalengd í sentímetrum þegar hún er til staðar. Buxur sem eru ökklasíðar á einni konu geta verið í fullri sídd á annarri.
Hvað þýðir Thermo?
Thermo vísar til hlýrri efnisútgáfu með mjúkri flískenndri innhlið. Það er ekki sjálfstætt snið: þú getur til dæmis valið Marie, Bella, Rose, Nena eða Lexi í Thermo-útgáfu þegar hún er í úrvalinu.
Síddin í sentímetrum skiptir máli
09 er ekki alltaf nákvæmlega sama sentímetrasíddin milli sniða. Innanfótarsíddin er mæld eftir innri skálminni frá klofi að faldi. Berðu hana gjarnan saman við buxur sem þú átt og þér líkar síddin á.
Hvernig vel ég stærð?
Byrjaðu á að skoða stærðartöfluna við vöruna sem þér líst á. Hafðu mál af mitti og mjöðmum við höndina og skoðaðu líka upplýsingar um efnið.
Stærðarval getur breyst með sniði og efni. Við mælum því ekki með einni algildri reglu um að fara alltaf upp eða niður um stærð. Fáðu aðstoð hjá okkur ef þú ert að skipta um snið eða ert á milli stærða.
Áttu þegar Robell-buxur sem þér líkar vel við?
Nafnið á sniðinu og stærðin eru góður upphafspunktur þegar þú velur næsta par.
Ertu á milli stærða eða óviss um sniðið?
Hafðu samband við okkur áður en þú pantar — við hjálpum þér að velja.
Við hjálpum þér að finna þínar buxur
Komdu til okkar á Dalveg 30 í Kópavogi eða hringdu í 517 6460.
Við aðstoðum þig við stærðarval og að bera saman sniðin.