[NEW] Skilmálar

Skilmálar um viðskipti við Belladonna.is

Netverslun Belladonna.is er rekin í samstarfi við verslun okkar:
Belladonna, Dalvegi 30, 201 Kópavogur S: 517-6460

Vinsamlega lesið skilmálana og samþykkið við lok kaupferlis.

Öllum sem koma við í netverslun hjá okkur, verður boðið að vera á póstlistanum.

Greiðsla pantana
Við bjóðum upp á eftirfarandi greiðslumöguleika.

Netgíró

Við erum með örugga greiðslusíðu hjá Borgun, þar sem hægt er að nota
Kreditkort (VISA, MasterCard) og debetkort (VISA Electron, Maestro)

Ef millifærsla hentar betur þá vinsamlega leggið inná reikning: 
Belladonna ehf.
Kt: 640614-0640
Reikn: 0537-26-6440

Vinsamlega sendið staðfestingu á millifærslu á netfangið
bokhald@belladonna.is með pöntunarnúmeri sem skýringu.
Pöntun er samþykkt um leið og greiðsla eða millifærslan hefur gengið í gegn, ef ekki er greitt innan 2ja daga telst pöntun ógild
 

Verð:
Öll verð á síðunni eru gefin upp í íslenskum krónum og með  
24% virðisaukaskatti. 

Verð eru birt með fyrirvara um myndbrengl eða prentvillur og áskilur Belladonna.is sér rétt til að hætta við viðskipti, hafi rangar upplýsingar birst á síðunni.

Afhendingartími:

Allar pantanir eru afgreiddar strax eða næsta virka dag eftir greiðslu pöntunar. 

Sé varan ekki til á lager, munum við hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar eða endurgreiðslu sé varan ekki væntanleg aftur. 

Sendingargjald er kr. 590 fyrir lægri upphæðir, en þegar verslað er fyrir kr. 10.000 eða meira sendum við þér vörurnar ókeypis, keyrum heim í flest póstnúmer á Höfuðborgarsvæðinu eða sndum með pósti á næsta pósthús, vinsamlega athugið að póstsendingar geta tekið 3-5 daga. 

Um allar sendingar, gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningskilmálar Íslandspóst um dreifingu og afhendingu.
Skilmála Póstsins má nálgast hér http://www.postur.is.
Tiskuhus.is tekur ekki ábyrgð á vöru eftir að hún hefur verið póstlögð.

Einnig er hægt að sækja vörur í verslun okkar, Belladonna í Skeifunni 8, 108 Reykjavík
       Opnunartímar verslunar

  • Mánud.- Föstudag kl. 11-18, 
  • Laugard. kl. 11-15, 
  • Sunnud. Lokað

Skilafrestur:
Vörum er hægt að skila innan 14 daga og fá endurgreiðslu. Skilyrði er að varan sé óskemmd í upprunalegum umbúðum og/eða með áföstum merkingum og kvittun fyrir vörukaupum fylgi. 

Hægt er að fá skipt yfir í aðra vöru, eða endurgreiðslu, eftir að varan er móttekin. 
Sendingarkostnaður sem við leggjum út, er ekki endurgreiddur og kemur til frádráttar á þeim vörum sem skilað er.
Vörum er hægt að skila beint í verslun Belladonna eða senda með pósti til:
Belladonna, Dalvegur 30, 201 Kópavogur,
Viðskiptavinir skulu bera kostnað af vöruskilum, nema um galla sé að ræða.

Gölluð vara: 
Sé vara gölluð, ber að hafa samband við verslunina sem fyrist og við bætum  hana með nýrri vöru, eða endurgreiðum vöruna, ef þess er krafist.
Tiskuhus.is greiðir allan sendingarkostnað sem hlýst af vöruskilum vegna gallaðar vöru. 

Trúnaður:

- Öryggisskilmálar: Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin.
Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
 

Lög og varnarþing: 
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. 

Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur