
Hver er skóstærðin þín? Til að mæla fótinn þinn skaltu standa á blað og teikna línu í kringum fótinn, halda blýantinum beinum allan tímann. Mældu síðan lengstu fjarlægðina frá hælnum að tánum. Þetta er fótarlengdin þín.

Smart vegan strigaskór frá Tamaris. Fást bæði kremhvítir með fíngerðu hvítu mynstri á hlið og gylltum smáatriðum og einnig svartir með gyltu á tungu og í reimum með svörtu fíngerðu mynstri á hliðum. Reimaðir en með rennilás á hliðinni, þannig að það þarf ekki að reima í hvert skipti sem farið er í þá.
2,5cm hæll
Sparilegir og sætir við bæði kjóla og buxur.